Færsluflokkur: Bloggar
7.6.2007 | 11:54
lélegar auglýsingar - fyrirmyndir
Skellti mér í Borgarnes fyrir tveim kvöldum, ágætis ferð, og var Akureyringurinn með Mótel Venus á heilanum. Henni til mikilliar gleði stoppuðum við þar. Næst er þá bara að taka mynd af staðnum og gefa henni í afmælisgjöf sem plaggat. Nú kvöldmaturinn var snæddur á Hyrunni, og ef fólk er fyrir feitan og fljótandi mat, þá mæli ég með honum, annars ekki. Hugmyndunar flugið fékk að njóta sín í þessari ferð og bjó ég til auglýsingu fyrir íþróttavöruverslun í bænum. En hún heitir Borgarspor og auglýsingin er ,,Borgarsport sig?"
Fyrirmyndir eru bráðnauðsynlegar ... ég hélt því fram að ég ætti þó ekki neina, þangað til ekki fyrir svo mörgum árum að ég uppgötvaði að ég átti eina, og svo í gegnum árin fer þeim fjölgandi. Í topp 10 og nr. 1 eru það konur sem eru samkvæmar sjálfum sér, því fegurðin skín að innan, og verð ég æ ofan í æ, varari við það. Svo má nefna móður og ömmu mína, og fullt af fleira fólki sem ég hef kynnst og finnst hafa góða eiginleika, sem ég reyni að temja mér ...
annars var mér litið á Smáralindar bæklinginn í gærkvöldi ... forsíðumyndin mjög hrein og bein í þetta skiptið, ekkert vafamál ... og talsvert eggjandi ... mér fannst hún nú bara hreint ekkert spes, og blaðið þeim mun meira innihalds laust. Einna vitið var í stjörnuspánni, og ef maður trúir ekki á svoleiðis dóma þá var blaðið heldur tómlegt :p
....en áfram með smjörið, kominn tími á að ath. hvað eigi að borða í hádeginu! ...steingleymdi að taka með mér nest
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2007 | 16:41
Veltingur
Ýmislegt drífur á daga fólks en mis mikið ... ýmislegt er nú hægt að velta sér upp úr ... ég er ekki að velta mér upp úr neinu, enda sit ég í stólnum mínum við tölvuna og er að vinna! :) gaman gaman
fólk getur pirrast yfir alskonar hlutum, ég líka. fólk er misjafnt að láta skoðanir sínar í ljós, ég líka. í dag hef ég engar skoðanir, en í kvöld hef ég fult af skoðunum, því þá mun ég sitja skoðanna mikinn fund þar sem alvarleg málefni verða rædd. reynum að ráða úr fortíðinni og framtíðinni eins og stjörnuspekingar.
á morgun, ja sá dagur er als endis óljós, en það gerist ansi oft. Þó finnst mér mjög gaman að lenda í svokölluðum "de-sja-vú" aðstæðum, eða þar sem draumar rifjast upp. bíflugu draumurinn minn frá því í síðasta mánuði skaust upp í kollinn á mér í gær kvöld. hann var óhugnalegur. ég var að reyna að gleyma honum. bókin sagði hann vera slæman, en ekki ég!
Á morgun mun ég hafa skoðanir, allan daginn er ekki víst, gæti þurft að spara mig fyrir kvöldið.
En nú ætla ég að lesa lög - ekki syngja, þetta eru ekki sönglög, heldur lög lagamanna. Enda geri ég ekki fólk, alla vegana ekki að óþörfu, að syngja.
eigið góðan dag, það sem eftir er af honum, og enþá betra kvöld! :D
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2007 | 12:48
Fljótlesnar bækur fyrir upptekið fólk í sumarfríinu

- Fölskvalaus iðrun - eftir Árna Johnsen
- Stjórnmálaflokkar sem ég á eftir að prófa - eftir Kristin H. Gunnarsson
- Tískuhandbók tölvunarfræðingsins
- Framfarir í mannréttindamálum í Kína
- Hlutir sem ég hef ekki efni á - eftir Björgúlf Thor Björgúlfsson
- Villtu árin - eftir Geir H. Haarde
- Hvernig halda skal formannssæti - Össur Skarphéðinsson
- Félagatal Framsóknarflokksins
- Kúnstin að vera krúttlegur - eftir Gunnar Birgisson
- Vinsælustu lögfræðingar landsins
- Hvernig á að bjóða útlendinga velkomna - eftir Jón Magnússon
- Úr fréttum inn á þing - eftir Ómar Ragnarsson
- Hafarnaruppskriftir - Náttúruverndarsamtök Íslands
- Þingmannsárin - eftir Jón Sigurðsson
- Það sem mér líkar vel í fari framsóknarmanna - eftir Steingrím J. Sigfússon
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 11:53
Mikilvægi hlífðarfatnaðar
Hettur og húfur skipta miklu máli er kemur að því að verja sig gegn veðrum og vindum. Ég er mikill húfu aðdáandi og finnst ótrúlega gaman að eiga margbreitileg höfuð föt.
Hettan á jakkanum mínum er t.d. stór góð en hettan á hettupeysunni minni algjör hörmung. Meira að segja hettan á regn jakkanum mínu, stór góðum frá North Face er bara ekkert spes.
Uppáhalds húfan mín er sú sem ég keypti mér í Chicago í fyrra í "strange cargo" og hef ég reyndar ekki keypt neina síðan. Einu sinni var ég alltaf með derhúfur, svo hætti það, sennilega vegna þess að uppáhalds derhúfan mín hvarf ... en ég á eina mega flotta sem er hafnarbolta húfa, uppáhalds liðsins míns, Chicago Cubs. En ég nota hana lítið þar sem mér finnst derhúfur bara ekki fara mér :p
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2007 | 16:14
Do you know Jack Schitt?
http://jack.zunino.net/knowjack.htm ...and now I know everything when someone askes me if I know jack schitt...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.5.2007 | 12:35
Virðingarleysi?
Samkvæmt Morgunblaðinu í dag er erfitt að halda við borgara höfuðborgarsvæðisins varðandi rusl og hirðingu þess. Þrifið er 2 sinnum í viku, hvort það sé nóg er spurningin.
En ég hef aðeins velt þessu fyrir mér hver sé ástæðan fyrir svo miklu rusli. Ég fór að rifja upp að þegar ég var lítil og þurfti að losna við rusl og engin ruslafata nálæg til þess. Ruslið var þá sett í vasann, á meðan. Þetta geri ég en þá.
Kannski bera íbúar borgarinnar ekki virðingu fyrir umhverfi sínu?
Það var nú góð auglýsing í vetur varðandi sóðaskap, og þá var sýnt inn á heimili þar sem fjölskyldan henti öllu á gólfið og annað, ,,alveg eins og" fólk gerir út á götu. (að bera ekki virðingu fyrir heimilinu sínu - að bera ekki virðingu fyrir umhverfinu sínu)
Mér finnst þetta sorglegt. Sorglegt að fólk beri ekki virðingu fyrir umhverfinu sínu. Þeir sem bera ekki virðingu fyrir umhverfinu sínu bera sennilega einnig litla virðingu fyrir öðrum.
Viljum við hafa þetta svona?
Annars er ég afskaplega fegin sólinni sem skín núna. Mér verður bara strax hlýtt innan brjóst. Kannski ég kíkti út í garð á eftir ... en þangað til ætla ég að demba mér í bókin sem heltekur mig þessa stundina. :p ...eigið góðan dag! :D
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 12:38
Speki fyrir helgina ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 13:59
Gamlir tímar
Fjölskyldan dró fram gamla plötu safn heimilisins í gær og rifjuðum upp gamla tíma. Aðallega varð fyrir valinu gamlir gítar snillingar og country. Sátum langt fram eftir nóttu og hlustuðum meðal annars á Chet Atkins og Roy Clark (1933).
Vitnað í Chet Atkins (June 20, 1924 - June 30, 2001; "Years from now, after I´m gone someone will listen to what I´ve done and know I was here. They may not know or care who I was, but they´ll hear my guitars speaking for me " Og þetta er nákvæmlega það sem ég gerði. Hlustaði á hann í gegnum gítarinn hans og það var frábært! Við vorum sammála um að Chet Atkins væri mjög góður, hrein og tær dýpt í gítarleik hans var hreinn unaður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2007 | 12:47
Hjólastólastæðin
Það eru svona skrítnustu hlutir sem fara stundum fyrir brjóstið á manni. Kannski sárnaði mér ekki beint en ég varð að einhverju leiti leið og hissa og... Ég var semsagt að koma úr Kringlunni með systur minni. Við höfðum verið að stússast saman, keyptum myndavél fyrir hana svo hún gæti tekið myndir í ferðlaginu sínu, fengum okkur kaffi og höfðum það mjög gott. Þangað til við lentum í veseni. Það vill enginn lenda í veseni eftir góðan og notalegan dag. Þegar við komum út á bílastæðið, ja þá bara komumst við ekki upp í bílinn. Ég hafði lagt í endastæði þannig að öðru megin var bíll og hinu megin gott pláss fyrir hjólastólabrautirnar. Það var kominn bíll í fatlaða stæðið við hliðina og einhver dúddi búinn að leggja gula "skutlu" bílnum sínum í, ja rauninni fatlaða stæði. Held að það hafi verið "gula skutlu bíls dúddanum til lukku" að fólkið við hliðina var að fara. En þá kom ég systur minni "öfugt" inn í bílinn. Og hann því ekki sektaður. Og allt gekk vel að lokum ... En það er ekki það sem skiptir alltaf máli að allt gekk vel að lokum. Heldur, að fólk van virði rétt annarra. Auðvitað gerist þetta oft og á ýmsan hátt, ýmiskonar þjóðfélags hópar eru vanvirtir. En þegar málið er svona augljóst. -Fatlaða skilti, stæðið blátt!- Þá er þetta svo asnalegt. Leiðinlegt að ekki sé hægt að fara eitthvað, nema búast oftast við einhverju misréttlæti. Búast við því að maður komist ekki úr stæðinu ...
Systir mín tekur þetta ekki nærri sér því hún hefur ekki þroska til þess, en ég "pirrast" yfir þessum hlutum. Það er til fullt af fólki í samfélaginu sem notast við hjólastól og skilur þetta misréttlæti. Er ekki nóg að vera öðru vísi, heldur en að vera öðru vísi og þurfa að finna fyrir því reglulega?
Kannski þarf að útskýra fyrir fólki hvers vegna fatlaða stæði séu og hvers vegna þau eru svona stór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2007 | 12:51
Das Leben der Anderen og Spiderman 3
Bíó tvo daga í röð, það er alveg frábært! :)
Á miðvikudagskvöldinu skelltum við Hilla okkur á "Das Leben der Anderen" í Háksólabíó. Ég var búin að bíða spennt eftir að komast á þessa mynd og hún stóð fyrir sínu. Sagan var ágæt og áhugavert að fylgjast með njósnum Stasi og vel kom í ljós hvernig þeir njósnuðu um fólk og af hvaða ástæðu. Allir voru grunaðir og því urðu "allir" að passa sig. Mér fannst leikstjórnin alveg hreint frábær og á mörgum stöðum þar sem maður náði að samsama sig með persónunum og tilfinningum þeirra. Stór góður leikur og leikstjórn og flest allt sagt án orða. Hlutirnir gerðust fyrir framan mann og maður skildi hvað var í gangi, stór góð samvinna þarna á ferð og mæli ég með myndinni! :)
Í gær var svo haldið á Spiderman 3 þar sem mér höfðu áskotnast boðsmiðar, og er ég fegin að hafa ekki eitt 950kr. á þessa mynd. Mér fannst hún ekki þess virði. Ameríska "sápan" stóð fyrir sínu, með "happily ever after" lokin. Myndin var ekki einu sinni góð afþreyingar mynd því hún var að hluta til langdregin, og afar slæmur leikur. En myndin fær stjörnu fyrir að vera vel matreidd ofan í mann og engar spurningar vöknuðu. Lærdómurinn var sá að Spiderman er og verður alltaf til alveg saman hvað á dynur. Og þó að manni gangi vel má maður ekki vera of montin og láta það spila með sig. Af því leiðir bara slæmt. Gott er að vita það að ,,hetjurnar" hverfa ekki. Heldur eru til staðar þegar á þarf að halda. Verst að Spiderman er bara ekki til í alvörunni.
Og talandi um hetjur, þá langar mig að sjá mynd um hvers dags hetjurnar því margt er hægt að læra af þeim. Fólkið sem þarf að hafa fyrirhlutunum og stendur uppi sem sigurvegar þó eitthvað bjáti á.
Var að setja inn vídeó af Hrappi og svo skemmtilega vildi til að pósturinn var að koma á sama tíma. Gaman að sjá á honum þegar hann heyrir eitthvað grunsamlegt sem þarf að ath. Það kemur sko enginn óboðinn inn á lóðin nema með hans samþykki. (en þið verðið að afsaka að þetta er allt yfirlýst, hef ekki nógu góða vél og tæki í tölvunni til að laga).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)