efasemdir og ýmis vafamál - Jurassic Park

Er að reyna að nota spádóms gáfuna til að finna út hvernig veturinn verður. Persónulega langar mig í mikinn snjó! LoL Fæturnir segja að hann verði þannig, allavegana kaldur. Veit ekki alveg með löngun í kuldann, þar sem hann ýtir undir verki í ónýtum liðum.logo
Er að reyna að hafa mig í að klára minn part hópverkefnisins - get það bara ekki - svo mikið eirðar leysi eitthvað! Verð að fara að kaupa mér kort í ræktina, þetta gengur bara ekki, safna bara og safna ónýttri orku og verð svo bara pirruð! Gæti örugglega virkjað mig eftir tvær vikur! Svei mér þá ef ég nýti ekki bara sundkortið og fari í sund eftir mat!

Eftir mikla bið og einhverja leit horfði ég á Jurassic Park á sunnudagskvöldið! Þetta var beiðni frá kennaranum sem kennir þessa viku og næstu, kvenna- og kynjafræði. Áhugaverð umfjöllun kennarans í tímanum í dag við myndina og Fraud-isma! Jurassic Park er enn þá ágætismynd, en var mun óhuggnalegri á sínum tíma. Sennilega vegna þess að þá var ég 11 ára en í dag, já töluvert eldri! Næsta verkefni er svo og hef ég valið mér myndina Long Kiss Good Night til að fjalla um stöðu, hlutverk og samskipti kynjanna. Nóg að horfa þessa dagana ásamt því að taka Breathless í kvikmyndagreiningu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband