lélegar auglýsingar - fyrirmyndir

Skellti mér í Borgarnes fyrir tveim kvöldum, ágætis ferð, og var Akureyringurinn með Mótel Venus á heilanum. Henni til mikilliar gleði stoppuðum við þar. Næst er þá bara að taka mynd af staðnum og gefa henni í afmælisgjöf sem plaggat. Tounge Nú kvöldmaturinn var snæddur á Hyrunni, og ef fólk er fyrir feitan og fljótandi mat, þá mæli ég með honum, annars ekki. Hugmyndunar flugið fékk að njóta sín í þessari ferð og bjó ég til auglýsingu fyrir íþróttavöruverslun í bænum. En hún heitir Borgarspor og auglýsingin er ,,Borgarsport sig?" LoL

Fyrirmyndir eru bráðnauðsynlegar ... ég hélt því fram að ég ætti þó ekki neina, þangað til ekki fyrir svo mörgum árum að ég uppgötvaði að ég átti eina, og svo í gegnum árin fer þeim fjölgandi. Í topp 10 og nr. 1 eru það konur sem eru samkvæmar sjálfum sér, því fegurðin skín að innan, og verð ég æ ofan í æ, varari við það. Svo má nefna móður og ömmu mína, og fullt af fleira fólki sem ég hef kynnst og finnst hafa góða eiginleika, sem ég reyni að temja mér ...
annars var mér litið á Smáralindar bæklinginn í gærkvöldi ... forsíðumyndin mjög hrein og bein í þetta skiptið, ekkert vafamál ... og talsvert eggjandi ... mér fannst hún nú bara hreint ekkert spes, og blaðið þeim mun meira innihalds laust. Einna vitið var í stjörnuspánni, og ef maður trúir ekki á svoleiðis dóma þá var blaðið heldur tómlegt :p
....en áfram með smjörið, kominn tími á að ath. hvað eigi að borða í hádeginu! ...steingleymdi að taka með mér nest Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Viðar

Alltaf þegar ég keyri framhjá Mótel Venus dettur mér í hug steríótýpa:

Einhver harðhaus að elta einhvern á mótorhjóli og keyrir í gegnum vegginn á vegamóteli þar sem er 80's par í ástarleikjum. Konan baðar út örmum og öskrar (ofaná í flestum tilfellum) og hetjan heldur áfram för sinni.

Haukur Viðar, 7.6.2007 kl. 13:16

2 identicon

hehe ...  kántrý hasar ...

María (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband