Hjólastólastæðin

Það eru svona skrítnustu hlutir sem fara stundum fyrir brjóstið á manni. Kannski sárnaði mér ekki beint en ég varð að einhverju leiti leið og hissa og... Ég var semsagt að koma úr Kringlunni með systur minni. Við höfðum verið að stússast saman, keyptum myndavél fyrir hana svo hún gæti tekið myndir í ferðlaginu sínu, fengum okkur kaffi og höfðum það mjög gott. Þangað til við lentum í veseni. Það vill enginn lenda í veseni eftir góðan og notalegan dag. Þegar við komum út á bílastæðið, disabled-parking-signwebja þá bara komumst við ekki upp í bílinn. Ég hafði lagt í endastæði þannig að öðru megin var bíll og hinu megin gott pláss fyrir hjólastólabrautirnar. Það var kominn bíll í fatlaða stæðið við hliðina og einhver dúddi búinn að leggja gula "skutlu" bílnum sínum í, ja rauninni fatlaða stæði. Held að það hafi verið "gula skutlu bíls dúddanum til lukku" að fólkið við hliðina var að fara. En þá kom ég systur minni "öfugt" inn í bílinn. Og hann því ekki sektaður. Og allt gekk vel að lokum ... En það er ekki það sem skiptir alltaf máli að allt gekk vel að lokum. Heldur, að fólk van virði rétt annarra. Auðvitað gerist þetta oft og á ýmsan hátt, ýmiskonar þjóðfélags hópar eru vanvirtir. En þegar málið er svona augljóst. -Fatlaða skilti, stæðið blátt!- Þá er þetta svo asnalegt. Leiðinlegt að ekki sé hægt að fara eitthvað, nema búast oftast við einhverju misréttlæti. Búast við því að maður komist ekki úr stæðinu ...
Systir mín tekur þetta ekki nærri sér því hún hefur ekki þroska til þess, en ég "pirrast" yfir þessum hlutum. Það er til fullt af fólki í samfélaginu sem notast við hjólastól og skilur þetta misréttlæti. Er ekki nóg að vera öðru vísi, heldur en að vera öðru vísi og þurfa að finna fyrir því reglulega?
Kannski þarf að útskýra fyrir fólki hvers vegna fatlaða stæði séu og hvers vegna þau eru svona stór.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæl elsku dullan min...er buin ad vera i DK...hef ekkert getad hringt til ad oska ther til hamingju med ammilid...innilega til hamingju dullan min...kem med dansk slikk for dig  knus fra køben ;o)

karen (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 06:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband