Das Leben der Anderen og Spiderman 3

Bíó tvo daga í röð, það er alveg frábært! :)
Á miðvikudagskvöldinu skelltum við Hilla okkur á "Das Leben der Anderen" í Háksólabíó. DasLebenDerAnderen-Poster01Ég var búin að bíða spennt eftir að komast á þessa mynd og hún stóð fyrir sínu. Sagan var ágæt og áhugavert að fylgjast með njósnum Stasi og vel kom í ljós hvernig þeir njósnuðu um fólk og af hvaða ástæðu. Allir voru grunaðir og því urðu "allir" að passa sig. Mér fannst leikstjórnin alveg hreint frábær og á mörgum stöðum þar sem maður náði að samsama sig með persónunum og tilfinningum þeirra. Stór góður leikur og leikstjórn og flest allt sagt án orða. Hlutirnir gerðust fyrir framan mann og maður skildi hvað var í gangi, stór góð samvinna þarna á ferð og mæli ég með myndinni! :)
Í gær var svo haldið á Spiderman 3 þar sem mér spiderman3xa8höfðu áskotnast boðsmiðar, og er ég fegin að hafa ekki eitt 950kr. á þessa mynd. Mér fannst hún ekki þess virði. Ameríska "sápan" stóð fyrir sínu, með "happily ever after" lokin. Myndin var ekki einu sinni góð afþreyingar mynd því hún var að hluta til langdregin, og afar slæmur leikur. En myndin fær stjörnu fyrir að  vera vel matreidd ofan í mann og engar spurningar vöknuðu. Lærdómurinn var sá að Spiderman er og verður alltaf til alveg saman hvað á dynur. Og þó að manni gangi vel má maður ekki vera of montin og láta það spila með sig. Af því leiðir bara slæmt. Gott er að vita það að ,,hetjurnar" hverfa ekki. Heldur eru til staðar þegar á þarf að halda. Verst að Spiderman er bara ekki til í alvörunni.
Og talandi um hetjur, þá langar mig að sjá mynd um hvers dags hetjurnar því margt er hægt að læra af þeim. Fólkið sem þarf að hafa fyrirhlutunum og stendur uppi sem sigurvegar þó eitthvað bjáti á.

Var að setja inn vídeó af Hrappi og svo skemmtilega vildi til að pósturinn var að koma á sama tíma. Gaman að sjá á honum þegar hann heyrir eitthvað grunsamlegt sem þarf að ath. Það kemur sko enginn óboðinn inn á lóðin nema með hans samþykki. (en þið verðið að afsaka að þetta er allt yfirlýst, hef ekki nógu góða vél og tæki í tölvunni til að laga).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband