28.9.2007 | 13:13
komið gott
Nú er ég alveg komin með nóg af því að lesa eitthvað sem ég veit ekki hvað er! Eða jú jú, svona frekar veit og veit ekki. Held ég fari bara að pakka og geri svo skila verkefnið tengt þessu veit og veit ekki verkefninu mínu
Hef aðeins verið að skoða málfar mitt undan farið og komist að nokkrum niðurstöðum.
Ég verð að hætta þessum hallærislegu ensku slettum.
Ég hef hugsað mér að nota orðið fólk í staðinn fyrir orðið maður. Því þá er ég að tala bæði um konur og menn.
Ég ætla að taka lýsingar orða notkun mína í gegn. Ég er á móti því að lýsa hugsunum mínu eða skapi á kostnað einstaka þjóðfélags hópa. T.d. eins og að segja að eitthvað sé geðveikt, eða segja að einhver sé þroskaheftur, bara til þess að undir strika eitthvað fáránlegt athæfi (að mér finnst) heilbrigðar manneskju á kostnað ástands einhvers annars.
Með þessu ætla ég mér að skapa betri heim. Því hvert og eitt orð hefur merkingu, og eigum því að spá í það hvað við segjum, og hvernig við segjum hlutina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2007 | 14:00
Gestabók
Kvittun fyrir komu.
Ákvað að kvitta aðeins hérna hjá sjálfri mér. Ég er á netinu og hef verið það undan farið en bara ekki gefið mér tíma til að blogga. Á ágætis bloggfærslu í huganum, en hún verður að vera þar örlítið lengur því ég er farin að lesa! Og upp í mörk á morgun!
Heyrumst og hafðu það gott!
og svo þetta;
In support ouf our ingredibly brave friends in Burma: May all people
around the world wear a red shirt on Friday, September 28. 2007
Please forward!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2007 | 15:10
óendanlegur lestur
Já þessar bækur og greinar taka engan enda ... búin að vera þónokkuð dugleg í dag, en þegar ég hélt að ég ætti eina grein eftir, þá bara popps! bætist önnur við og hún er nú ekki stutt :p Svo til þess að brjóta síðustu klukkustundir upp og geta haldið áfram fái þið, innihaldstlaust blogg :p hehe ...
Vegamót og kannski Ölstofan í kvöld með ammerísku frænkunni. Hvað haldi þið, hún borðar lakkrís! Eini kaninn sem ég veit um sem gerir það, en hún er jú íslenska að hluta. :p Ættli ég fái hana því ekki til að prufa Opal eða eitthvað á barnum :) Og alveg sjálf viljug, með litlum þrýstingi frá okkur, prufaði hún hákarl í Kolaportinu síðustu helgi! Get nú ekki annað en verið stolt af henni! :) En segjum það, heilinn búinn að ranka við sér og lestur hefst því að nýju!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2007 | 16:01
Minningar

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 19:37
Tónlistarmyndband
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2007 | 23:29
Nýja trilli tækið

En hugsið ykkur, að bíða í ár. Það væri eins og ef ég þyrfti að bíða í ár eftir að fá skó á mig!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 19:42
ABC barnahjálp
Í staðinn fyrir að senda þér tölvupóst, lestu þá bara þetta hér;
Við hjá ABC barnahjálp höfum nú tekið inn í skólana okkar og heimili mikinn
fjölda nýrra barna af biðlista sem voru í mikilli neyð. Nú er staðan sú að
okkur vantar stuðningsaðila fyrir hátt á annað þúsund barna.
Þar sem við viljum ekki eyða fjármagni í dýrar auglýsingar, datt okkur í
hug að leita til þín.
Vilt þú senda þennan póst með tengli inn á heimasíðu okkar til
vinnufélaga, vina og vandamanna og biðja þá að senda þetta áfram?
'Vilt þú styðja barn í neyð? Ýttu þá á
http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/
Með fyrirfram þakklæti
ABC barnahjálp
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 13:04
Leti
Mikið langar mig að setjast upp í sófa og glápa bara á videó. Detta inn í tilbúin heim ... fá smá afþreyingu og losna undan streitu á þess að þurfa að lesa. Ekki það að námsefnið sé ekki skemmtilegt, ég er bara allt í einu ekki stemd í það ákkúrat núna. En ætli ég verði ekki bara að byrja og þá verður þetta OK! Svo er ég líka núna fyrst að komast inn í þetta allt saman, lestrar rútínuna og svona, því það er svo íheyrilega mikið að lesa og regluleg verkefna skil!
Annars hef ég verið heldur upptekin af ,,nýju" frænku minni sem er hérna á landinu í heimsókn. Hún er svona ný af því leitinu að ég hef bara ekkert kynnst henni fyrr en núna. Enda býr hún í Hollywood og aldrei komið til Íslands. Það er svolítið spennandi að eiga frænku sem býr í Hollywood og er make-up artist! Ég á þá eitthvað sameiginlegt með öðrum í fjölskyldunni ... djók... Já svo við frænkurnar erum bara búnar að vera að kynna henni fyrir land og þjóð!
En ... nú er lesturinn málið! Adios-amigos
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2007 | 21:43
Sumarliturinn
Stundin er runnin upp! Brúnkan er áorkaðist með miklum sundferðum í sumar er horfin!
Þetta er nett áfall því ég hef ekki verið "svona brún" svolítið lengi.
Nú er bara að bíða fram á næsta sumar.
Var að læra á iGoogle í gærkvöld - er að fikra mig áfram í þessu núna, þvílík snilld!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2007 | 18:04
Fuglahræðsla
Vildi bara deila með ykkur nokkrum ástæðu fyrir því hvers vegna ég er haldin ,,fugla ótta" ... en á eftir farand myndbandi er einmitt það sem ég óttast mest.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)